Dæmi um aðkomu Vinunar

 

·         Ég  lenti í slysi fyrir tveimur árum sem leiddi til þess að ég hef takmarkaðan mátt í höndum og er í hjólastól.  Ég er fjölskyldumaður og vil gjarnan geta sinnt mér meira sjálfur en málum er þannig háttað að ég hef verið meira og minna  upp á fölskyldu mína komin með alla aðstoð. Ég vil geta haldið utan um líf mitt  líkt og ég gerði áður en ég fatlaðist og vera sjálfstæðari í ferðum innan og utan heimilisins. Færnin er að sjálfsögðu skert, en viljinn er til staðar og ég vil einfaldlega aðstoð við að framfylgja lífi mínu eins og ég vil lifa því. Ég er með stöðugt samviskubit gagnvart konu minni og aðstandendum og vil endurheimta gæðastundir með þeim sem ég tel að verði  frekar til ef fólk er ekki sífellt að ,,sinna“ mér eða upplifa umönnun mína sem kvöð. En þannig upplifi ég aðstæður mínar gagnvart fólkinu mínu. Það er endalaust að sinna karlinum í staðinn fyrir að ég geti sinnt þeim líka.

 

·         Móðir mín var lögð inn á spítala með flensu. Sex mánuðum síðar er hún enn inni á spítala og hefur hrakað svo um munar, misst heil 20 kíló, nærist ekki og fær ekki örvun né hvatningu frá fagfólki. Ég vil að hún fái endurheimt líf sitt, heilsu og sjálfstæði á ný og fái einhverja félagslega örvun svo hún nái sér á strik aftur.

·         Móðir mín er að koma heim eftir spítaladvöl. Hún er ekki enn orðin nógu hress til að vera algjörlega ein og þarf aðstoð við að versla og með önnur heimilisstörf.

 

·         Afi minn er nýlega orðinn ekkill og virðist ekki una sér vel heima við, er bæði félagslega einangraður á daginn þegar aðstandendur eru í vinnu og vantar ,,aukahendur“ til þess að hugsa um tilfallandi hluti innan heimilisins.

 

·         Strákurinn okkar greindist með einhverfu fyrir tveimur árum síðan. Hann er félagslega einangraður og   við foreldrarnir erum endalaust með áhyggjur af honum. Við mundum gjarnan þiggja aðstoð með að rjúfa þessa félagslegu einangrun sem hann er kominn í og styðja hann með að tengjast einhverjum þeim úrræðum sem fyrir eru.

  

·         Pabbi minn er sjötugur og greindist nýlega daufblindur. Hann hefur lengst af búið einn og verið mjög sjálfstæður heima við. Nú er staðan önnur og við fjölskyldan viljum gera ráðstafanir svo að hann ,,drabbist“ ekki niður og nái jafnframt að viðhalda sjálfstæði sínu heima við. Við viljum alls ekki að hann endi inni á hjúkrunarheimili, enda algjörlega ótímabært miðað við hvað hann er hraustur og viljugur að búa sjálfstætt.

 ---------------

 

Mikilvægt að eiga möguleika á þjónustu 


Rannsóknir sem beinst hafa að lífi og aðstæðum fólks hafa sýnt fram  á mikilvægi þess að fólk hafi sjálft möguleika á að móta þá þjónustu sem þeim býðst. Jafnframt hafa þær bent á að við áföll molni sú sjálfsmynd sem fólk hafði og upplifunin fyrir því hvert það er. Því er mikilvægt að stuðningur taki mið af persónulegum þörfum hvers og eins svo viðkomandi nái sátt við sjálfan sig og umhverfið.

Margir aðrir þættir spila að sjálfsögðu inn í og hafa áhrif á sjálfsmyndina en rannsóknir beinast mjög að þeim stuðningi sem fólk fær þegar áföll verða í lífi þess. Eitt af því sem bent er á að verði að vera til staðar fyrir fólk sem fatlast er:  

  • val og stjórn
  • möguleikar á að skilgreina sjálfstæði sitt
  • persónuleg aðstoð sem er mótuð af þeim fatlaða sjálfum

 

Vinun er í síma 578-9800. 

 

 

 
 
Vinun ehf | Laugavegi 59, 4. hæð | 101 Reykjavík | Sími 578-9800 & 820-5768 | vinun@vinun.is