NPA

NPA er skammstöfun fyrir notendastýrða persónulega aðstoð og lýtur að félagsþjónustu sem ætlað er að uppfylla þarfir fatlaðs fólks fyrir aðstoð heima og úti í samfélaginu og njóta þannig þess frelsis í daglegu lífi er ófatlað fólk tekur sem gefnu.

Rétturinn til aðstoðarinnar á sér stoð í meginmarkmiðum Stjórnarskrár Íslands og samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun. Markmiðið með NPA er að fólk með líkamlegar eða andlegar skerðingar og þörf fyrir aðstoð hafi möguleika á að lifa sjálfstæðu og virku lífi. NPA þjónusta hefur ekki verið innleidd á Íslandi, en er þó veitt nokkrum einstaklingum á takmarkaðan hátt og í flestum tilvikum sem tilraunaverkefni. Á Norðurlöndum er þessi þjónusta við lýði og á sér lengsta sögu í Svíþjóð eða allt frá árinu 1993.

Vinun heimaþjónusta starfar eftir hugsjónum NPA og leggur sín lóð á vogarskálarnar til þess að gera Ísland að þjóð sem virðir sjálfsögð mannréttindi eftir fyrirmyndum nágrannalandanna.

Sjá nánar skrá hér að neðan um NPA og samanburð við stofnanastýrða þjónustu:

NPA og samanburður við stofnanastýrða þjónustu

-Af SSL vefnum www.ssl.blog.is Samtökum um sjálfstætt líf-

Hafðu samband við okkur og kynntu þér nánar þjónustu Vinunar eftir forskrift NPA.

 
 
Vinun ehf | Laugavegi 59, 4. hæð | 101 Reykjavík | Sími 578-9800 & 820-5768 | vinun@vinun.is