Heimaþjónusta, heimahjúkrun, umönnun, félagsleg liðveisla, innlit og viðvera.
Vinun heimaþjónusta veitir heimaþjónustu, heimahjúkrun og liðveislu til allra þeirra er búa við skerta færni af einhverju tagi. Þjónusta Vinunar er einstaklingsmiðuð og því fjölbreytt eftir aðstæðum og aldri fólks. Stuðningur við aðstandendur er mikilvægur hluti af þjónustunni og mögulegt er að fá fjölskylduráðgjöf samhliða henni.
Vinun heimaþjónusta hefur reynslu og fagþekkingu á málefnum fatlaðs fólks, aldraðra og barna og unglinga með greiningu á einhverfurófi. Starfsfólk Vinunar er traust, vandað og ber virðingu fyrir heimili og lífsstíl þjónustuþega. Sterk liðsheild Vinunar veitir sveigjanlega heimaþjónustu á öllum tímum sólarhrings með stuttum fyrirvara eða eftir föstu samkomulagi, t.d. með áskriftarleiðum Vinunar.
Við hvetjum fólk til þess að hafa samband í síma 578-9800 eða kíkja við á Laugavegi 59, 4. hæð þar sem skrifstofur okkar eru í lyftuhúsnæði. Við tökum hlýlega á móti og veitum ítarlega ráðgjöf um þjónustu og úrræði sem í boði eru í samfélaginu.


