Félagastuðningur

Félagastuðningur er leið til að rjúfa félagslega einangrun ungs fólks  sem er að mótast og læra að takast á við lífið og tilveruna. Félagastuðningur er byggður þannig upp að áhersla er á að finna réttu manneskjuna fyrir viðkomandi,   félaga sem honum/henni líður vel með og kærir sig um að eyða tíma með.

 Algengt er að unglingar sem eru einhverfir eða eru með einhverja andlega eða líkamlega fötlun séu háðir foreldrum sínum eða öðrum aðstandendum um félagslega samveru eða fólki tengt opinberri þjónustu. Rannsóknir hafa sýnt að ungt fatlað fólk dreymir um vini á eigin forsendum, einhvern sem þau eiga fyrir sig og er tengdur þeim, því er félagastuðningur mikilvægur (Rowland, 2001). 

Í samskiptum við félaga þroskast samkennd, skilningur á umhverfinu og með félaga er hægt að ræða mál sem ekki eru rædd við foreldra. Við þannig aðstæður er hægt að fá dómgreind lánaða, skiptast á skoðunum og fá stuðning gagnvart mikilvægum málum.  Það hefur sýnt sig að félagastuðningur er besta vörnin til að koma í veg fyrir að unglingar sem búa við skerta félagslega færni leiðist út í óæskilegan félagsskap eða verði fyrir einhvers konar misnotkun.

Þeir sem vinna í félagastuðningi  hjá Vinun fá handleiðslu fagfólks og hafa greiðan aðgang að  stuðningi hvenær sem er

Eygló Ingólfsdóttir einhverfuráðgjafi og Gunnhildur Heiða Axelsdóttir fjölskylduráðgjafi sjá um handleiðslu og allt utanumhald og alltaf er hægt að setja sig í samband við aðra hvora ef þannig ber undir.

 
 
Vinun ehf | Laugavegi 59, 4. hæð | 101 Reykjavík | Sími 578-9800 & 820-5768 | vinun@vinun.is