Vantar þig þjónustu heim?
Heimaþjónusta , heimahjúkrun , umönnun, félagsleg liðveisla , innlit og viðvera.
Vinun heimaþjónusta er ráðgjafar- og þjónustumiðstöð fyrir fatlaða, aldraða, langveika, börn og aðstandendur. Vinun veitir persónumiðaða þjónustu sem tekur mið af einstaklingnum sjálfum og þörfum hans. Vinun veitir heimaþjónustu, heimahjúkrun, umönnun, liðveislu, innlit og viðveru. Starfsfólk í heimaþjónustu Vinunar er vandað, traust og ber virðingu fyrir heimili og lífsstíl þjónustuþega.
Vinun dregur nafn sitt af forn-íslensku samheiti yfir 'vináttu' og 'vinnukonu'.
Í forstöðu fyrir Vinun heimaþjónustu er Gunnhildur Heiða Axelsdóttir, Dipl.Ed.-próf í uppeldis-og menntunarfræðum frá K.H.Í. með áherslu á þroskaþjálfun og fötlunarfræði frá H.Í. Jafnframt vinnur Gunnhildur Heiða að meistaraverkefni um líf og aðstæður fólks sem fatlast komið á fullorðins ár í kjölfar veikinda eða slysa.
Hjá Vinun heimaþjónustu starfa í dag 35 manns, bæði hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, félagsliðar, þroskaþjálfi, einhverfuráðgjafi og starfsmenn vanir aðhlynningu og félaglegum stuðningi.
Vinun leggur metnað sinn í að fylgja starfsfólki sínu eftir og veita framúrskarandi þjónustu.
Vinun er til húsa á Laugavegi 59, 4. hæð (Kvennagarði). Gott aðgengi er að byggingunni og er aðstaða til að leggja bíl, bæði fyrir framan Laugaveginn og eins fyrir aftan bygginguna, Hverfisgötumegin (gamli Kjörgarður). Bílastæðahús er við Hverfisgötuna og hægt að keyra inn í það niður Vitastíg eða koma að því Skúlagötumegin.
Vinun býður heimaþjónustu, heimahjúkrun og liðveislu. Einnig er hægt að vera í áskrift að þjónustu eftir áskriftarleiðum Vinunar.
Vinun er í síma 578-9800 og skrifstofutími er frá 08.30 - 17.00. Hér er hægt að senda fyrirspurn.
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it


