Félagslegt innlit

Félagslegt innlit er þjónusta sem hentar vel fullorðnu fólki sem er sjálfbjarga en þarfnast stuðnings í formi hvatningar og við tilfallandi daglega þætti. Bæði eru það eldri borgarar sem eru að nýta sér þessa þjónustu til að rjúfa félagslega einangrun og líka til að auka öryggi sitt og ekki síst yngra fólk. Þjónustan hefur verið mikilvæg fólki sem hefur verið inniliggjandi á geðdeild og er að fóta sig í tilverunni aftur eftir dvöl á stofnun og þarfnast þess að vita af því öryggi sem innlit á ákveðnum tíma dags gefur þeim.

Með heimsókninni er hægt að minna á lyf, aðstoða við almenna þætti eins og að taka til mat, búðarferðir og samvera meðan viðkomandi nærist. Litlir þætti sem þessir veita hvatningu og öryggi á meðan fólk er að fóta sig upp á nýtt eftir stofnanadvöl og gefur líka færi á hlustun, það að vera ,heyrður' og ,séður' og finna það að maður er ekki alveg einn.

 

 
 
Vinun ehf | Laugavegi 59, 4. hæð | 101 Reykjavík | Sími 578-9800 & 820-5768 | vinun@vinun.is