
Liðveisla Vinunar
Liðveisla Vinunar er þjónusta sem aðstoðar einstaklinga og fjölskyldur félagslega, styður við persónulegan þroska og veitir félagsskap og samfylgd út í lífið. Liðveisla Vinunar nær til allra þeirra sem þurfa félagslegan stuðning og liðveislu; barna, unglinga og fullorðinna.
Vinun hefur áralanga reynslu af starfi með börnum og unglingum með greiningu á einhverfurófi. Eygló Ingólfsdóttir, uppeldisfræðingur og einhverfuráðgjafi er þar í forsvari og hefur yfirumsjón með uppsetningu þjónustunnar og eftirfylgni.
Hjá Vinun starfa bæði karlmenn og kvenmenn sem hafa sérhæfingu og reynslu af félagslegri liðveislu til einhverfra, fólks með geðraskanir og annarra sem þurfa tímabundinn stuðning vegna áfalls. Starfsfólk er sérsniðið að þörfum þjónustuþega með kyn, aldur og persónuleika í huga.
Starfsfólk í liðveislu Vinunar er vandað og traust og ber virðingu fyrir heimili og lífsstíl þjónustuþega.
Sjá nánar um félagslegt innlit.
Félagslegt Innlit
Félagslegt Innlit
Hér má einnig sjá ólíkar áskriftarleiðir í þjónustu.
Hafðu samband í síma 578-9800 eða á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it og fáðu ráðgjöf þér að kostnaðarlausu.
Sjá nánar um félagastuðning Vinunar.


