Fatlað fólk

ImageÞjónusta við fatlað fólk

Sérstaða og sérhæfing Vinunar hefur löngum verið sveigjanleg þjónusta við fatlað fólk. Starfsfólk okkar hefur t.a.m. sérþekkingu og reynslu við að þjónusta fólk með mænuskaða, hreyfihömlun og lömun. Einnig býður Vinun félagslega liðveislu þeim sem eru með geðraskanir. Þjónusta við fatlað fólk felur í sér þjónustu heim, hjúkrun og stuðning í athöfnum daglegs lífs. Þjónustan er sérsniðin að þörfum þjónustuþega með tilliti til heimilisaðstæðna og lífsstíls.

Vinun starfar eftir fyrirmynd Notendastýrðrar Persónulegrar Aðstoðar (NPA) og hvetur allt fatlað fólk til þess að kynna sér NPA miðstöðina á Íslandi.

Hér má sjá ólíkar áskriftarleiðir Vinunar í heimaþjónustu.

Starfsfólk í heimaþjónustu Vinunar er vandað og traust og ber virðingu fyrir lífsstíl hvers og eins.

Hafðu samband í síma 517-7168 eða á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it og fáðu ráðgjöf þér að kostnaðarlausu.

 
 
Vinun ehf | Laugavegi 59, 4. hæð | 101 Reykjavík | Sími 578-9800 & 820-5768 | vinun@vinun.is