Réttur fatlaðs fólks

Þjónusta Vinunar starfar eftir lögum um málefni fatlaðra og aldraðra. Heimili og lífsstíll þjónustuþega er virtur í hvívetna.

Réttur fatlaðs fólks

Almenn þjónusta
Fatlað fólk á rétt á allri almennri þjónustu ríkis og sveitarfélaga og ávallt skal leitast við að veita fötluðu fólki þjónustu samkvæmt almennum lögum á sviði menntunar,  heilbrigðis- og félagsþjónustu. Reynist þjónustuþörf hins fatlaða einstaklings meiri en svo að henni verði fullnægt innan almennrar þjónustu skal hann fá þjónustu samkvæmt lögum um málefni fatlaðra.

Stoðþjónusta

Veita skal fötluðu fólki þjónustu sem miðar að því að gera þeim kleift að lifa og starfa í eðlilegu samfélagi við aðra. Stoðþjónustu þessi skal  miðast við eftirtaldar þarfir;

1.  Þarfir fatlaðs fólks fyrir þjónustu á heimilum sínum sem felst í því að treysta möguleika þeirra til sjálfstæðs heimilishalds. Þjónusta þessi er m.a. eftirfarandi;

Liðveisla
Sveitarfélög skulu eftir föngum gefa fötluðu fólki kost á liðveislu. Með liðveislu er átt við persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð til að njóta menningar og félagslífs.
Í sérstökum tilvikum skal veita fötluðu fólki frekari liðveislu sem felur í sér margháttaða aðstoð við ýmsar athafnir daglegs lífs, t.d. að klæða sig, komast um og stunda nám eða atvinnu. Hún er veitt til viðbótar heimaþjónustu og gjarnan að kvöldlagi og um helgar. Frekari liðveisla er veitt með það í huga að hún sé nauðsynleg til að koma í veg fyrir dvöl á stofnun. 

 

2. Þarfir fatlaðs fólks til hæfingar, endurhæfingar og atvinnu sem m.a. felast í því að þau geti séð sér farborða og tekið virkan þátt í samfélaginu. Þjónusta þessi er m.a. eftirfarandi;

Félagsleg hæfing og endurhæfing.
Fatlað fólk skal njóta félagslegrar hæfingar og endurhæfingar í þeim tilgangi að draga úr áhrifum fötlunar og auka hæfni fatlaðs fólks til starfa og þátttöku í daglegu lífi. Starfrækja skal sérstakar hæfingar- og endurhæfingarstöðvar, svo og dagvistarstofnanir fyrir fatlað fólk sem geta veitt þroskaþjálfun, iðjuþjálfun og/eða starfsþjálfun.

Heimilt er að veita
fötluðu fólki aðstoð vegna félagslegrar hæfingar og endurhæfingar sem hér segir:
1. Styrk til verkfæra- og tækjakaupa eða aðra fyrirgreiðslu vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni.
2. Styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga.


Atvinnumál
Á hverju starfssvæði skal starfrækt atvinnuleit sem hefur það markmið að afla fötluð fólki atvinnu við sitt hæfi.

- Í tengslum við atvinnuleit skal veita starfsráðgjöf. Þar sem sveitarfélög starfrækja sérstaka vinnumiðlun skal fela þeirri vinnumiðlun að annast atvinnuleit fatlaðs fólks samkvæmt sérstökum samningi.

-Veita skal
fötluðu fólki aðstoð til að sinna störfum á almennum vinnumarkaði þegar þess gerist þörf. Skal það gert með sérstakri liðveislu á vinnustað, svo og fræðslu og leiðbeiningum til annars starfsfólks.

-Veita skal
fötluðu fólki starfsþjálfun í almennum fyrirtækjum eða stofnunum þar sem því verður við komið. Í þeim tilvikum skal gera sérstakan samning þar sem m.a. er kveðið á um þjálfunartímabil og greiðslu kostnaðar.

-Á hverju starfssvæði skal
fötluðu fólki standa til boða vernduð vinna á almennum vinnumarkaði. Vernduð vinna getur falist í störfum sem skipulögð eru með tilliti til fötlunar. Heimilt skal jafnframt að starfrækja verndaða vinnustaði fyrir fatlað fólk. Verndaðir vinnustaðir skulu annars vegar veita fötluðu fólki launaða starfsþjálfun svo að þau geti starfað á frjálsum vinnumarkaði. Hins vegar skulu þeir veita fötluðu fólki launuð föst störf.

-Fatlað fólk skal eiga forgang að atvinnu hjá ríki og sveitarfélagi ef hæfni þeirra til starfsins er meiri eða jöfn hæfni annarra sem um starfið sækja. Sé að mati svæðisráðs gengið á rétt
fatlaðs einstaklings við veitingu starfs getur það krafið veitingarvaldhafa um skriflega greinargerð fyrir ákvörðun sinni í sambandi við stöðuveitinguna.

3. Þarfir fatlaðs fólks fyrir sálfræðiþjónustu, ráðgjöf, félagslegan stuðning og félagslegt samneyti, þar með talið að njóta tómstunda og menningarlífs.

 -Svæðisskrifstofur í málefnum fatlaðra sjá um að fatlaðir fái sálfræðiþjónustu og félagsráðgjöf á svæðinu.

-Sveitarfélög skulu eftir föngum veita fötluðu fólki kost á liðveislu, eins og áður er komið fram.

-Sveitarfélög skulu gefa
fötluðu fólki kost á ferðaþjónustu. Markmið ferðaþjónustu fatlaðra er að gera þeim sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki kleift að stunda atvinnu og nám og njóta tómstunda.
Jafnframt skal
fatlað fólk eiga rétt á ferðaþjónustu á vegum sveitarfélaga vegna aksturs á þjónustustofnanir og vegna annarrar sértækrar þjónustu sem veitt er fötluðum sérstaklega.

4. Þarfir fatlaðra barna fyrir umönnun og þjálfun ásamt nauðsynlegri aðstoð við fjölskyldur þeirra svo að þær geti búið börnunum örugg og þroskavænleg uppeldisskilyrði.

-
Fötluð börn skulu eiga rétt til leikskóladvalar á vegum sveitarfélaga og skal veita hana á almennum leikskólum með nauðsynlegri stuðningsþjónustu eða á sérhæfðum deildum

- Fötluð börn skulu eiga kost á þjónustu leikfangasafna. Auk útlána úr leikfangasafni fer þar fram þroska- og leikþjálfun barna. Á leikfangasöfnum skal veitt uppeldisleg ráðgjöf og leiðbeiningar við notkun leikfanga í þjálfunarskyni.

-Fjölskyldur
fatlaðra barna skulu eiga kost á þjónustu stuðningsfjölskyldna eftir því sem þörf krefur. Dvöl fatlaðs einstaklings hjá stuðningsfjölskyldu skal bundin í samningi og miðast við ákveðið tímabil.


-Foreldrar skulu eiga kost á skammtímavistun fyrir fötluð börn sín þegar þörf krefur. Skammtímavistun er ætlað að veita fötluðum tímabundna dvöl til hvíldar eða vegna erfiðra heimilisaðstæðna, svo sem vegna veikinda eða annars álags.


-Stuðla skal að því að fötluð börn eigi kost á sumardvöl þegar þörf er á. Sumardvöl er ætlað að gefa fötluðum kost á að skipta um umhverfi og dveljast utan heimilis síns sér til ánægju og tilbreytingar.

Búseta.
Fatlað fólk skal eiga kost á búsetu í samræmi við þarfir þeirra og óskir eftir því sem kostur er. Búseta fatlaðs fólks, sem lög um málefni fatlaðra taka til, getur verið:
Félagslegar íbúðir,
verndaðar íbúðir, sambýli, vistheimili, heimili fyrir börn og áfangastaðir.
Búseta fatlaðs fólks samkvæmt  lögum um málefni fatlaðra skal vera í íbúðabyggð


Húsnæðismál
Stuðla skal að því að fötluðu fólki standi til boða félagslegar íbúðir, þ.e. félagslegar leiguíbúðir, kaupleiguíbúðir og félagslegar eignaríbúðir samkvæmt lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins.

Réttindagæsla fatlaðra.
-Svæðisráð í málefnum
fatlaðra skulu standa vörð um rétt fatlaðra til þjónustu samkvæmt lögum um málefni fatlaðra og öðrum lögum eftir því sem við á.

-Starfsmenn, sem sinna þjónustu við fatlaða og starfa á stofnunum fatlaðra, skulu standa vörð um hagsmuni þeirra og gæta þess að réttindi þeirra séu virt.
 
-Í því skyni að treysta réttindi fatlaðra einstaklinga á heimilum fatlaðra; sambýlum, vistheimilum, heimilum fyrir börn og áfangastöðum, á sviði einkalífs og meðferðar fjármuna þeirra skulu svæðisráð skipa sérstakan trúnaðarmann fatlaðra

 

Vinun er í síma 578-9800

This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it


 

 
 
Vinun ehf | Laugavegi 59, 4. hæð | 101 Reykjavík | Sími 578-9800 & 820-5768 | vinun@vinun.is