Á álagstímum jafnt sem í hversdagsleika er gott að gefa sér tíma í að hugleiða, stilla strengi hugans og safna orku fyrir verkefni dagsins. Þetta er ekki síður mikilvægt þegar veikindi hrjá okkur.
Vinun mun reglulega setja inn stuttar hugleiðsluæfingar sem verða aðgengilegar hér.
Sendið netfang ykkar á
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
ef þið viljið fá þær sendar beint í netpóstinn.
Með vinsemd,
Vinun
------------
Hugleiðsluæfingar
Á morgnana þegar við vöknum og teygjum úr okkur er gott að breiða út faðminn og þakka fyrir þennan yndislega dag sem er að byrja og segja við okkur í huganum; að við hlökkum til að taka á móti nýjum og spennandi verkefnum sem þessi dagur færir okkur. Munum að hver dagur er nýtt upphaf með ótal möguleikum.
Hvernig getum við veitt okkur stuðning, staðið með okkur og hlúð að hugmyndum okkar og draumum?
Fyrsta er að gagnrýna sig aldrei, það er eiginlega regla númer 1, 2 og 3. Við eigum auðveldara með að læra og tileinka okkur nýja hluti ef við erum jákvæð og hrósum okkur fyrir það sem við erum að gera.
Notum jákvæðar staðhæfingar og segjum við okkur sjálf að við séum yndisleg og flott eins og við erum.
----
Slökun
Byrjaðu á því að loka augunum, draga djúp inn andann og anda svo rólega út
Sjáðu fyrir þér að þú sitjir í stól fyrir framan kertaljós, þú situr þar um stund, horfir í logann og leyfir hugsunum þínum að skjótast framhjá…taktu eftir þeim en ekki halda í þær…Þú lokar augunum og andar djúpt að þér og andar rólega frá þér og finnur um leið að allur líkami þinn slakar á, þú tekur eftir að öll spenna í höfði, hálsi, öxlum og baki líður út úr líkama þínum með hverri útöndun…því næst finnurðu alla spennu líða úr brjóstkassa, handleggjum, höndum og fingrum…..prófaðu að spenna fingur og slaka svo á þeim og finna hver munurinn er á spennu og slökun í vöðvunum…næst slakarðu á kvið, fótleggjum, fótum og tám….Nú ert þú komin/n í góða slökun og líkami þinn slakar vel á….
Ef hugsanir gera vart við sig meðan á þessari hugleiðslu stendur leyfðu þeim að koma, taktu eftir þeim og leyfðu þeim að fara aftur….
Frá Tinnu Maríu á Orkulind.is
----
Fræjum sáðHugsaðu þér tómatplöntu. Á heilbrigðri plöntu geta vaxið yfir hundrað tómatar. Til þess að eignast tómatplöntu með öllum þessum aldinum, þarftu að hafa lítið, þurrkað fræ. Fræið er ekkert líkt tómatplöntu. Það bragðast ekki einu sinni eins og tómatplanta. Ef þú vissir ekki betur þá tryðir þú því tæplega að það gæti nokkru sinni orðið að tómatplöntu. En segjum nú svo að þú sáir þessu fræi í frjóan jarðveg, vökvir það og látir sólina verma það.
Þegar fyrsta litla spíran gægist upp úr moldinni, dettur þér ekki í hug að traðka á henni og segja: „Þetta er engin tómatplanta.” Nei, þú horfir á spíruna og segir: „Að hugsa sér! Hún er að koma upp,” og þú fylgist fagnandi með vexti hennar og heldur áfram að vökva plöntuna og sjá um að hún fái áburð, ljós og næga umhirðu. Með því eignast þú tómatplöntu með meira en hundrað girnilegum tómötum – og – allt byrjaði þetta með litla fræinu.
Þessi samlíking er sambærileg og þegar þú skapar sjálfum þér nýja reynslu, langar til að gera eitthvað uppbyggilegt og blómstra sem manneskja. Jarðvegurinn sem þú sáir í er undirvitund þín. Fræið er nýju aðstæðurnar, fullyrðingin. Nýja reynslan felst öll í þessu örsmáa fræi (fullyrðingu). Þú vökvar það með jákvæðum staðhæfingum. Þú lætur sólskin jákvæðra hugsana verma það. Þú reytir burt illgresið með því að bægja burt þeim neikvæðu efasemdum sem gera vart um sig hjá þér. Þegar þú kemur auga á fyrstu litlu spíruna, þá traðkarðu ekki á henni og segir: „Þetta er ekki nóg! ” Þess í stað horfirðu á þennan fyrsta vísi að árangri og segir fagnandi: „Að hugsa sér! Þetta er allt að koma. Þetta ætlar að takast!” og þú fylgist með sprotanum vaxa og verða að kraftbirtingu óska þinna.
Úr bók Louise L. Hay: Hjálpaðu sjálfum þér.
----
Úthaf allsnægta
Þessi æfing er tekin úr bók Louse L. Hay og heitir „Hjálpaðu sjálfum þér”.
Ég ímynda mér að ég standi á sjávarströnd og horfi yfir hafið. Ég gef mér tíma til að njóta hafsins, kyrrðarinnar, golunnar, ferskleika hafsins og sjávarlyktar. Ég geri mér í hugarlund að hafið geymi allar þær allsnægtir sem mér standa til boða. Ég gef mér tíma til að upplifa víðáttu og óendanlega gnægð hafsins og að það skipti engu máli hvaða ílát ég eða aðrir í kringum mig eru með, það er og verður nóg til handa okkur öllum. Það er ekki hægt að þurrausa hafið.
Eftir að vera búin að njóta þessarar tilfinningar um stund geng ég inn í daginn með notalega tilfinningu um óendanlega gnægð alheimsins og þeirra allsnægta sem umvefja mig.
----


