Úttektarlykill þessi er verkfæri ætlað til úttekta á aðgengi fatlaðra að byggingum. Lykilinn er engan veginn tæmandi úttektartæki, heldur hjálpartæki, því mörg atriði krefjast þess að fagmenn taki þau út. Lyklinum fylgja leiðbeiningar þar sem nánar er útskýrt hvers vegna tiltekin atriði eru skoðuð, svo og kynningarblað á blindraletri.
Úttektarlykilinn má finna hér: Úttektarlykill
Við vinnslu á þessum úttektarlykli var stuðst við úttektarlykla sem gerðir voru af ferlinefnd Reykjavíkurborgar og af ferlinefnd félagsmálaráðuneytisins. Skýringarmyndirnar í lyklinum eru úr úttektarlykli ferlinefndar Reykjavíkurborgar.
Lykill sem þessi er alltaf í stöðugri þróun og endurskoðun, bæði vegna tækniþróunar og fjölbreytileika húsa.


