Hjá allmörgum kemur að þeim tímamótum að þeir þurfa aðstoð við athafnir daglegs lífs. Einstaklingar og aðstandendur eiga gjarnan erfitt með að gera sér grein fyrir því hvort þörf er á aðstoð og leita því ekki eftir hjálp fyrr en í óefni er komið og eina úrræðið er vistun á stofnun. Með því að grípa fyrr inn í og aðstoða einstaklinga í heimahúsum má koma í veg fyrir stofnanavistun, tryggja lengra líf í eigin húsnæði og auka þannig gæði efri ára.
Hér á eftir er nokkrum spurningum kastað fram fyrir einstaklinga og aðstandendur til að gera sér betur grein fyrir því hvort einhverrar aðstoðar er þörf.
Þarftu aðstoð við almennt hreinlæti?
Þarftu aðstoð við að klæðast?
Ertu óöruggur, dettin/n?
Ertu svimagjarn/gjörn?
Gleymirðu að taka lyfin þín?
Ertu með húðvandamál, sár, roða, útbrot?
Áttu í erfiðleikum með hægðir eða þvag?
Áttu erfitt með að nærast?
Ef eitthvað af ofangreindu á við þig, eða þína, þá býður Vinun sérsniðna þjónustu til skemmri eða lengri tíma allt eftir þörfum og óskum hvers og eins.
Vinun heimaþjónusta veitir yfirgripsmikla þjónustu í formi beinnar hjúkrunar, félagslegrar þjónustu, viðveru, innlits og almenns eftirlits og leggur sig fram við að einstaklingar geti búið í eigin húsnæði sem lengst.
Hjá Vinun er einnig starfandi hjúkrunarfræðingur sem veitir ráðgjöf í síma 578-9800 á mánudögum og þriðjudögum milli kl. 8.30 - 12.00. Starfsfólk okkar er þar að auki til tals alla virka daga og hjálpar þér að finna úrræði um þjónustu.


