Vinun býður persónumiðaða heimaþjónustu sem tekur mið af einstaklingnum sjálfum og þörfum hans.
Þörf er á auknu vali um þjónustu í íslensku samfélagi og Vinun er svar við þeirri þörf. Reynslan sýnir okkur að fólk kann að meta þau lífsgæði sem aukast þegar heimaþjónusta Vinunar er fyrir hendi.
Markmið Vinunar er að styðja og styrkja einstaklinga með þjónustu sem orðið hafa fyrir skertri færni vegna
-
veikinda
-
fötlunar
-
öldrunar
Vinun þjónustar þessa aðila á ýmsa vegu, meðal annars
- á heimilinu
- á stofnunum
- í samfélaginu
Fræðilegar rannsóknir sýna að mikilvægt er að fólk sem býr við líkamlega eða andlega skerðingu hafi sjálft möguleika á að móta þá þjónustu sem það þarfnast. Það er talið nauðsynleg forsenda félagslegrar virkni.
Heimaþjónusta, heimahjúkrun, umönnun, félagsleg liðveisla, innlit og viðvera er þjónusta sem Vinun veitir af natni og virðingu.
Vinun er í síma 578-9800 og með netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it


